Timían
Timían hefur bragð af kryddaðri sítrónu. Það passar vel bæði á kjöt, fisk, pizzu og pasta. Einnig gott í kryddlög, sósur og súpur. Andstætt öðru fersku kryddi þolir timían mjög vel suðu.
Geymsla
Ártangaplöntur eru í pottum svo þær séu sem ferskastar þegar þú ferð með þær heim. Á meðan þær eru í pottinum fer best um þær við stofuhita. Ef þú klippir þær niður um leið og þú kemur heim geymast þær í kæli, en ekki basilikan, hún þolir aldrei undir 10°C þá verður hún fljótt svört og ljót.
Ártangakryddplöntur eru ungar og því geturðu nýtt alla plöntuna og þarft í fæstum tilvikum að taka stilkinn frá. Ef þú villt lengja líftíma plöntunnar í pottinum þá er nauðsynlegt að umpotta í stærri pott og gefa henni næringu og mikið ljós til að viðhalda bragðgæðum.
Ef svo óheppilega vill til að plantan þín þornar, ekki henda henni. Klipptu hana af rótinni og leggðu á pappír og þurrkaðu hana vel. Hún er bara orðin að þurrkaðri kryddjurt og bragðið er það sama. Sagt er að maður geti aldrei notað of mikið af kryddjurtum, bara of lítið. Ef þú setur smá er það bara liturinn sem breytist ekki bragðið.
Hvaða hluta er hægt að borða?
Borða má alla hluta.
En ef kryddjurtin er í potti þá ráðleggjum við ekki að borða ræturnar 😉
Sjá nánar myndir og annan fróðleik hjá garðyrkjustöðinni Ártanga
Innihald í 100 g | Vatn 70 g |
---|
Næringargildi í 100 g | |
---|---|
Orka | 555 kj |
131 kcal | |
Fita | 2,5 g |
Þar af mettuð | 0,10 g |
Kolvetni | 24,2 g |
Þar af sykurtegundir | g |
Trefjar | g |
Prótein | 3,0 g |
Salt | 0,05 g |
NV* | ||
---|---|---|
B1 vítamín | 0,16 mg | 15% |
* Hlutfall af næringarviðmiðunargildum