Ártangi
Edda og Gunnar

Garðyrkjustöðin Ártangi í Grímsnesi var stofnuð árið 1986 af hjónunum Sigurdísi Eddu Jóhannesdóttur og Gunnari Þorgeirssyni garðyrkjufræðingi, á landi sem áður tilheyrði Ormsstöðum þar sem Edda hefur átt heimili frá sjö ára aldri. Árið 2023 tók dóttir þeirra, Freydís Gunnarsdóttir, við rekstrinum og leiðir stöðina áfram með sömu ræktarsemi, metnaði og ástríðu sem einkennt hefur starf fjölskyldunnar frá upphafi.
Þegar borað var eftir heitu vatni á Ormsstöðum, sem átti að nota til húshitunar, kom í ljós mun meira vatn en talið var. Í ársbyrjun 1986 byggðu þau Gunnar og Edda gróðurhús og þá kom heita vatnið í góðar þarfir við upphitun. Þau voru nýkomin heim frá Danmörku, þar sem Gunnar stundaði nám í garðyrkju.
Fyrsta gróðurhúsið var aðeins 200 fermetrar og í því ræktuðu hjónin pottaplöntur. Smám saman stækkaði garðyrkjustöðin og þegar umfangið var mest ræktuðu þau 300 til 400 tegundir af pottaplöntum í 3000 fermetrum og seldu t.d. í Blómavali. Árið 2002 bættu þau við laukblómum og byggðu 500 fermetra kælirými við stöðina.
Árið 2013 ákváðu þau að hætta að rækta pottaplöntur og snúa sér að kryddjurtum. Nú eru ræktaðar 17 tegundir af kryddjurtum í Ártanga, en mest er ræktað af basiliku, kóríander, grænni myntu, steinselju, rósmarín og timían.
Þau Gunnar og Edda fóru til Noregs áður en kryddplönturæktunin hófst og hafa nýtt sér reynslu Norðmanna við ræktunina.
Ártangi er vistvæn stöð og lögð áhersla á að endurnýta vatn, áburð og mold. Þá er lífrænum vörnum beitt við ræktunina. Tíu starfsmenn vinna í Ártanga þegar mest er að gera. Tvær dætur þeirra Gunnars og Eddu starfa einnig við stöðina, en sonur þeirra, sem er verkfræðingur hefur verið liðtækur þegar tæknimálin eru annars vegar.
Landsmenn hafa tekið ferskum kryddjurtum afskaplega vel og eftirspurnin hefur aukist ár frá ári.
Heimasalan í Ártanga er opin frá miðjum maí til júlíloka.
Sjá nánari upplýsingar um kryddjurtir hér:



Forsæti IV

Gufuhlíð

Laugarland























