Garðyrkjustöðin Friðheimar hóf heilsársræktun á Piccolotómötum haustið 2012, en þeir eru með bragðmestu tómata afbrigðum þessa heims. Piccolotómatar eru kirsuberjatómatar og er plantan ákaflega vinnufrek og kröfuhörð á allar ræktunaraðstæður en ef rétt er haldið á spöðunum skilar það sér í bragðinu. Piccolotómatar eru svo sætir og bragðgóðir að jafnvel þeir sem borða ekki tómata þykja þeir góðir!
Tómatar eru ákaflega viðkvæmir fyrir kæliskemmdum og þá má ekki geyma í kæli. Besti geymsluhiti tómata er 10-12°C. Tómatar sem verða fyrir kæliskemmdum verða fljótt linir og bragðlitlir, því er ekki gott að geyma þá í ísskápnum.
Ekki er gott að láta tómata liggja nálægt blaðmeti (salati), gúrkum og öðrum afurðum. Mjög gott er að geyma tómata oft á eldhúsborðinu því þá getur heimilisfólkið nartað í einn og einn tómat. Börn borða grænmeti líka miklu frekar ef það er haft fyrir framan þau.
Piccolotómatar eru mjög góðir sem hollustusnakk einir og sér. Þá má líka nota í allskyns salöt og ýmsa rétti.
Já, en hafa verður í huga að eftir frystingu er einungis gott að nota þá í soðna rétti á sama hátt og niðursoðna tómata.
Allur tómaturinn er ætur nema bikarblöðin sem er ávallt búið að taka af íslenskum tómötum áður en þeir koma í verslanir.
Ætur hluti 100 % |
|
Innihald í 100 g |
|
Vatn 94 g |
|
Orkurík efnasambönd |
|
Prótein 0.9 g |
Trefjar 1.5 g |
Kolvetni 4.3 g |
Fita 0.2 g |
kj 97 |
kcal 23 |
Steinefni |
|
Járn 0.6 mg |
Kalk 15 mg |
Vítamín |
|
A Ret. ein 100 µg |
B1 0.04 mg |
B2 0.03 mg |
Niacin 0.7 mg |
C (askorbínsýra) 20 |
Tómatar eru vítamínríkir, einkum er mikið af A- og C-vítamíni í þeim, en auk þess eru þeir ríkir af steinefnum og ávaxtasýru. Í þeim eru fáar hitaeiningar sem gerir þá upplagða sem megrunarfæði.