Kínakál er eins og nafnið bendir til mikið ræktað í Kína en hingað kemur það í ræktun um 1975.
Undirtegundin pekinensis myndar höfuð ( 0,5 - 2 kg að þyngd) sem eru uppskorin til neyslu. Kínakál er forræktað í gróðurhúsum við hitastig yfir 16°C og plantað út í upphitað land og /eða undir dúk. Ef hitastigið er lágt í uppeldi er hætt við að plönturnar blómgist áður en þær hafa myndað uppskeruhæf höfuð.
Algeng afbrigði eru Jamiko og Bilko. Kínakál geymist í 4 - 5 mánuði við 0 - 1°C.
Kínakál geymist frekar vel. Best er að geyma það við 0-2°C. Kínakáli er hætt við að þorna upp og er því gott að pakka því inn í plast. Kínakál sem búið er að skera niður verður ávallt að pakka inn í plast til að það þorni síður upp.
Kínakál er mildara á bragðið og inniheldur minna af trefjum en aðrar káltegundir. Það er því gómsætara en þær og hentar betur í ýmsa hráa rétti eins og salat. Þó að kínakálið sé einkum notað í salat og aðra hráa rétti, hentar það einnig vel í súpur, ofnbakaða rétti og að sjálfsögðu í alla kínverska rétti. Kínakál má sjóða, smjörsteikja og grilla, svo eitthvað sé nefnt.
Já, skerið kálið í granna strimla og setjið í sjóðandi vatn í 1 mínútu. Pakkið því í frystiumbúðir og setjið beint í frysti þegar það hefur kólnað.
Kínakál sem hefur verið fryst þarf að nota strax eftir að það hefur þiðnað og það hentar ekki í hráa rétti þar sem það verður lint og slepjulegt við frystingu.
Cut about half a centimetre off the bottom of the stalk; the rest is edible.
Ætur hluti 95 %
|
|
Innihald í 100 g |
|
Vatn 96 g
|
|
Orkurík Efnasambönd |
|
Prótein 0.8 g
|
Trefjar 0.4 g
|
Kolvetni 2.7 g
|
Fita 0.1 g
|
kj 63
|
kcal 15
|
Steinefni |
|
Járn 0.4 mg
|
Kalsíum 15 mg
|
Vítamín |
|
A Ret. ein 36 µg
|
B1 0.02 mg
|
B2 0.02 mg
|
Niacin 0.2 mg
|
C (askorbínsýra ) 25mg
|