Rauðkálssalat
Með mandarínum
Höfundur: Nanna Rögnvaldardóttir

Innihaldslýsing:
350 g niðursneitt íslenskt rauðkál
4 mandarínur
1/2 rautt epli
25 g pekanhnetukjarnar (eða valhnetukjarnar) grófmuldir
1 msk möndluflögur
4 msk góð ólífuolía
1 msk balsamedik eða rauðvínsedik
Nýmalaður pipar
Salt
Leiðbeiningar:
Rauðkálið skorið í mjóar ræmur og sett í skál.
Mandarínurnar afhýddar, skipt í geira og þeir e.t.v. skornir í tvennt.
Eplið flysjað, kjarnhreinsað, skorið í litla bita og blandað saman við rauðkál og mandarínur, ásamt hnetum og möndlum.
Olía, edik, pipar og salt hrist saman, hellt yfir og blandað vel.