Konfekttómatar

Jan
Feb
Mar
Apr
Maí
Jún
Júl
Ágú
Sep
Okt
Nóv
Des
Íslenska grænmetisdagatalið

Meðal afbrigða er Sunstream sem líkist papriku í lögun, mjög sætur á bragðið og hver klasi er með 12 aldin sem eru 20 – 25 g að þyngd. Ræktun þeirra er mjög svipuð og ræktun tómata en næturhiti er hafður mun lægri til að blómklasarnir verði stærri og tómatarnir fleiri. Lágur næturhiti stuðlar einnig að sætari aldinum. 

Geymsla

Tómatar eru ákaflega viðkvæmir fyrir kæliskemmdum og þá má ekki geyma í kæli. Besti geymsluhiti tómata er 10-12°C. Tómatar sem verða fyrir kæliskemmdum verða fljótt linir og bragðlitlir, því er ekki gott að geyma þá í ísskápnum. Ekki er gott að láta tómata liggja nálægt blaðmeti (salati), gúrkum og öðrum afurðum. Mjög gott er að geyma tómata á eldhúsborðinu því þá getur heimilisfólkið nartað í einn og einn tómat. Krakkar borða grænmeti líka miklu frekar ef það er haft fyrir framan þau.

Notkun

Konfekttómatar eru litlir og henta vel í sallöt og góðir sem snakk. Flestir vita hvernig nota á tómata, þá má nota á svo margvíslegan hátt að hér er vart rými nema til að minnast á það allra helsta. Þeir henta vel í hrásalat, ofan á brauð og í súpur og sósur. Þeir eru góður hráir en einnig má sjóða þá og steikja eða baka með fyllingu.  Auðvelt er að afhýða þá þegar búið er að dýfa þeim í sjóðandi vatn í 20-30 sekúndur.

Má frysta tómata?

Já, en hafa verður í huga að eftir frystingu er einungis gott að nota þá í soðna rétti á sama hátt og niðursoðna tómata.

Hvaða hluta er hægt að borða?

Allur tómaturinn er ætur nema bikarblöðin sem er ávallt búið að taka af íslenskum tómötum áður en þeir koma í verslanir.

Innihald í 100 g Vatn 94 g
Næringargildi í 100 g
Orka 74 kj
17 kcal
Fita 0,3 g
Þar af mettuð 0 g
Kolvetni 2,1 g
Þar af sykurtegundir 2,1 g
Trefjar 1,8 g
Prótein 0,8 g
Salt 0 g
NV*
C vítamín15,8 mg20%

* Hlutfall af næringarviðmiðunargildum

Tómatar eru vítamínríkir, einkum er mikið af A- og C-vítamíni í þeim, en auk þess eru þeir ríkir af steinefnum og ávaxtasýru.
Uppskriftavefur

Hollar uppskriftir

Í samvinnu við helstu kokka landsins koma reglulega nýjar og hollar uppskriftir á uppskriftarvef Íslenskt.is. Fylgstu með og komdu þér í form.
Uppskriftavefur