Salatblanda

Með baunum og ólífum

Höfundur: Nanna Rögnvaldardóttir

Innihaldslýsing:
  • 4 tómatar, vel þroskaðir
  • 200 g kirsuberjatómatar
  • 1 gúrka
  • 1 dós kjúklingabaunir
  • 12-15 grænar ólífur, steinlausar
  • 1 rauðlaukur
  • 1 poki íslenskt pokasalat
  • 4 msk olía
  • 1 msk epla- eða hvítvínsedik
  • 2-3 msk steinselja, söxuð
  • Nýmalaður pipar
  • Salt
Leiðbeiningar:

Tómatarnir skornir í helminga, fræin skafin úr þeim með skeið og þeir síðan skornir í geira.

Kirsuberjatómatarnir skornir í tvennt.

Gúrkan skorin í litla teninga.

Vökvanum hellt af kjúklingabaununum, ólífurnar skornar í tvennt eða þrennt og rauðlaukurinn saxaður smátt.

Allt sett í skál ásamt salatinu og blandað vel.

Olía, edik, steinselja, pipar og salt hrist eða hrært vel saman, hellt yfir salatið og blandað.

Látið standa smástund áður en það er borið fram.