Jarðarberjaland
Hólmfríður og Steinar

Hólmfríður Geirsdóttir garðyrkjubóndi í Jarðarberjalandi, Reykholti Biskupstungum lauk námi við Garðyrkjuskóla ríkisins árið 1982 og hefur starfað við garðyrkju síðan. Hólmfríður og eiginmaður hennar Steinar Jensen rafvélavirki stofnuðum garðyrkjustöð í Reykholti árið 2000, en reka nú garðyrkjustöðina Jarðarberjaland.
Í Jarðarberjalandi eru ræktuð jarðarber allt árið af yrkinu Sonata sem gefur sæt og bragðmikil ber. Berin eru tínd beint í söluöskjurnar og komið í kæli innan við tveimur klukkustundum eftir tínslu. Við framleiðslu berjanna er notast við lífrænar varnir gegn skordýrum og því engin plöntulyf notuð. Engin heimasala er á berjunum en alltaf hægt að kaupa þau í hverfisbúðinni í Reykholti.


Staðsetning: Reykholt
Flúðasveppir
Flúðir
Reykjabakki
Flúðir
Ásinn
Skálholt
Silfurtún
Flúðir
Uppskriftavefur
Hollar uppskriftir
Í samvinnu við helstu kokka landsins koma reglulega nýjar og hollar uppskriftir á uppskriftarvef Íslenskt.is. Fylgstu með og komdu þér í form.