Kjúklingasúpa
Með papriku og káli
Höfundur: Nanna Rögnvaldardóttir

Innihaldslýsing:
- 2 kjúklingabringur
- 1 ½ msk olía
- 1 laukur, saxaður
- 1 hvítlauksgeiri, saxaður smátt
- 2-3 paprikur, gjarna mismunandi litar, fræhreinsaðar og skornar í bita
- 1 ltr vatn
- 1 msk grænmetis- eða kjúklingakraftur
- 2-3 cm bútur af engifer, smátt saxaður
- Nýmalaður pipar
- Salt
- 150 g spergilkál, skipt í kvisti
- 150 g blómkál, skipt í kvisti
- 150 g hvítkál, skorið í mjóar, stuttar ræmur
- Sítrónu- eða límónusafi
- Söxuð steinselja (má sleppa)
Leiðbeiningar:
Kjúklingabringurnar skornar í þunnar sneiðar þvert yfir. Olían hituð í potti og laukur og hvítlaukur látinn krauma í nokkrar mínútur án þess að brúnast.
Paprikurnar settar út í og látnar krauma í nokkrar mínútur í viðbót.
Vatninu hellt yfir og hitað að suðu.
Grænmetis- eða kjúklingakrafti og engifer hrært saman við og kryddað með pipar og salti. Látið malla í 6-8 mínútur.
Þá eru kjúklingasneiðarnar settar út í og síðan spergilkál, blómkál og hvítkál. Hitað að suðu og látið malla í 5-6 mínútur, eða þar til kálið er meyrt og kjúklingurinn soðinn í gegn.
Súpan bragðbætt með sítrónu- eða límónusafa, pipar og salti eftir smekk og dálítilli steinselju e.t.v. hrært saman við.