Hvítkál

Jan
Feb
Mar
Apr
Maí
Jún
Júl
Ágú
Sep
Okt
Nóv
Des
Íslenska grænmetisdagatalið
Hvítkál er algengasta káltegundin og mest ræktuð.
Hvítkál er náskylt öðrum káltegundum svo sem rauðkáli, blöðrukáli, rósakáli, blómkáli og spergilkáli ásamt mustarði, piparrót og karsa en næringargildi allra þessara tegunda er svipað. Eins og flestar káltegundir er hvítkál í raun stórt brum þar sem blöðin sitja á stuttum stöngli og legggjast hvort yfir annað og mynda höfuð.
 
Sumarkálið er forræktað í gróðurhúsum og því plantað út í maí undir dúk. Kál sem ætlað er til geymslu er líka forræktað og plantað út í byrjun júní. Ef kálið næst gott í geymslu getur það geymst lengi í kæli við 0°C.

Geymsla

Besti geymsluhiti fyrir hvítkál er 0-5°C. Hvítkál getur geymst nokkuð lengi ef vel er passað upp á rétt hitastig og að kálið þorni ekki upp. Því þarf að pakka því vel inn.

Notkun

Hvítkál er notað hrátt og smátt saxað í ýmiss konar salöt. Það hentar vel í súpur og grænmetisstöppu en einnig má borða það soðið eða smjörsteikt, einnig má nota það í fyllingar eða sjóða niður. Ef það er soðið, notið þá líka ystu blöðin þar sem þau eru næringarríkust. Sé kálið orðið slappt má gera það safaspennt á ný með því að leggja það í ísvatn í 30 mín. og leggja síðan beint í sjóðandi vatn. Víða erlendis er algengt að búa til súrkál úr hvítkáli með því að láta það gerjast við loftfirrtar aðstæður.

Má frysta hvítkál?

Ekki er venja að frysta hvítkál þar sem það er oftast fáanlegt allt árið, en þó má frysta það með góðum árangri. Kálið er hreinsað og stöngullinn fjarlægður. Skerið kálið síðan í granna strimla og setjið í sjóðandi vatn í 3 mínútur. Pakkið því í frystiumbúðir og setjið beint í frysti þegar það hefur kólnað. Athugið að kál missir eittthvað af næringargildi sínu við suðu og bragðgæðin minnka. Súrsað kál heldur betur bragðgæðum og næringargildi við frystingu.
 

Hvaða hluta er hægt að borða?

Allir hlutar höfuðsins eru ætir nema neðsti hluti stöngulsins. Eigi að borða stöngulinn þarf að sjóða hann í u.þ.b. 20 mínútur. Eins og áður er nefnt er næringin aðalega fólgin í stönglinum og ystu blöðunum.Allt nema hýðið. 

Innihald í 100 gVatn 92 g
Næringargildi í 100 g
Orka117 kj
28 kcal
Fita0,2 g
Þar af mettuð0,04 g
Kolvetni4,1 g
Þar af sykurtegundir4,1 g
Trefjar2,3 g
Prótein1,3 g
Salt0,01 g
NV*
Fólínsýra55 µg28%
C vítamín54 µg68%

* Hlutfall af næringarviðmiðunargildum

Hvítkál er hitaeiningasnautt en mikilvæg uppspretta A- og C-vítamína og járns. Í stilkum og taugum blaðanna er mikið af trefjum. Eins og hjá öðrum káltegundum eru ystu blöðin næringarríkust og því grænni sem þau eru þeim mun meira innihalda þau af vítamínum og járni. Eitthvað dregur þó úr vítamíninnihaldi við suðu. Jurtalæknar telja að hvítkál hafi jákvæð áhrif gegn ýmsum sjúkdómum. Hvítkál er ómissandi hluti í hollustu og fjölbreyttu fæði.
Uppskriftavefur

Hollar uppskriftir

Í samvinnu við helstu kokka landsins koma reglulega nýjar og hollar uppskriftir á uppskriftarvef Íslenskt.is. Fylgstu með og komdu þér í form.
Uppskriftavefur