Estragon

Jan
Feb
Mar
Apr
Maí
Jún
Júl
Ágú
Sep
Okt
Nóv
Des
Íslenska grænmetisdagatalið

Estragon er ilmrík kryddjurt með löngum, mjóum grænum blöðum og örlítið sætu anísbragði sem minnir á lakkrís. Það er mikið notað í franskri matargerð og gefur bernessósunni sitt einkennandi bragð.

Estragon passar vel með kjúklingi, fiski og eggjaréttum og er einnig gott í kryddsmjör, salatdressingar og kartöflusalöt. Bragðið er nokkuð afgerandi og því gott að byrja á litlu magni og bæta við eftir smekk.

 

 

Geymsla

Ártangaplöntur eru í pottum svo þær séu sem ferskastar þegar þú ferð með þær heim. Á meðan þær eru í pottinum fer best um þær við stofuhita. Ef þú klippir þær niður um leið og þú kemur heim geymast þær í kæli, en ekki basilikan, hún þolir aldrei undir 10° þá verður hún fljótt svört og ljót.

Ártangakryddplöntur eru ungar og því er hægt að  nýta alla plöntuna og þarft í fæstum tilvikum að taka stilkinn frá. Gott er að nota þær fljótt og vel. Við framhaldsræktun er nauðsynlegt að umpotta þeim og gefa  næringu og mikið ljós til að viðhalda bragðgæðum.

Ef svo óheppilega vill til að plantan þín þornar, ekki henda henni. Klipptu hana af rótinni og leggðu á pappír og þurrkaðu hana alveg. Hún  er bara orðin að þurrkaðri kryddjurt og bragðið er það sama. Sagt er að maður geti aldrei notað of mikið af kryddjurtum, bara of lítið. Ef þú setur bara smá er það bara liturinn sem breytist ekki bragðið.

Hvaða hluta er hægt að  borða?

Borða má alla hluta.
En ef kryddið er í potti þá ráðleggjum við ekki að borða ræturnar 😉

Sjá nánar myndir og annan fróðleik hjá garðyrkjustöðinni Ártanga

 

 

Innihald í 100 gVatn 92 g
Næringargildi í 100 g
Orka206 kj
49 kcal
Fita1,1 g
Þar af mettuð0,10 g
Kolvetni6,3 g
Þar af sykurtegundir6,3 g
Trefjar2,1 g
Prótein3,4 g
Salt0,02 g
Uppskriftavefur

Hollar uppskriftir

Í samvinnu við helstu kokka landsins koma reglulega nýjar og hollar uppskriftir á uppskriftarvef Íslenskt.is. Fylgstu með og komdu þér í form.
Uppskriftavefur