Tacos með kjúklingi
Höfundur: Nanna Rögnvaldardóttir

3-4 kjúklingabringur
2 tsk mexíkókryddblanda (eða eftir smekk)
Nýmalaður pipar
Salt
2 msk olía
Safi úr 1-2 límónum (má sleppa)
1 pakki tacoskeljar
4 tómatar, vel þroskaðir
½ gúrka
Ostarúlla með mexíkóblöndu frá Ostahúsinu
Tacosósa
Salatblöð, Grand- eða Íssalat
Sítrónubátar
Kjúklingabringurnar skornar í þunnar sneiðar þvert yfir, kryddaðar með mexíkókryddblöndu, pipar og salt.
Steiktar í olíunni í 5-6 mínútur, eða þar til þær eru steiktar í gegn.
Þá er pannan tekin af hitanum og límónusafa dreypt yfir kjúklinginn.
Tacoskeljarnar hitaðar í ofni eða örbylgjuofni.
Tómatarnir skornir í tvennt, fræin skafin úr þeim og þeir síðan skornir í litla bita.
Gúrkan skorin í teninga.
Dálítið af tómötum og gúrku sett í tacoskeljarnar, nokkrum kjúklingabitum raðað ofan á, síðan 2-3 þunnum sneiðum af ostarúllu, tacosósu ausið yfir og borið fram á salatbeði ásamt sítrónubátum.