Paprikusúpa
Tilvalin í hádeginu
Höfundur: Hrefna Sætran
Innihaldslýsing:
- 4 stk paprika
- 1 stk kartafla
- 2 stk laukur
- 2 rif hvítlaukur
- Garðablóðberg
- 400 ml vatn
- Ólífuolía til steikingar
- Salt og pipar
Leiðbeiningar:
Skerið allt grænmetið niður í litla bita.
Setjið í pott ásamt ólífuolíunni og brúnið létt.
Bætið vatninu úr í og sjóðið í 30 mín.
Maukið súpuna með töfrasprota eða í matvinnsluvél og kryddið með salt og pipar.