Austurlenskur réttur

Með gúrkum og papriku

Höfundur: Nanna Rögnvaldardóttir

Innihaldslýsing:
  • 1 íslensk gúrka

  • Salt

  • 15 cm bútur af blaðlauk (hvíti hlutinn)

  • 1 íslensk paprika

  • 1/2 chilialdin, eða eftir smekk

  • 3 msk olía

  • 1 lítil dós ananas í bitum

  • 2 msk ostrusósa

  • 1 msk sojasósa

  • 1-2 msk salthnetur (má sleppa)

Leiðbeiningar:

Hérlendis er lítið gert af því að nota gúrkur í heita rétti en sumstaðar í Austurlöndum er það algengt. Þessi réttur er súrsætur og ljúffengur.
 
Gúrkan skorin í bita, gjarna fremur óreglulega, þeir settir í sigti og dálitlu salti stráð yfir.

Látnir standa nokkra stund en síðan eru bitarnir skolaðir og þerraðir á eldhúspappír.

Blaðlaukurinn skorinn í ræmur, paprikan fræhreinsuð og skorin í bita og chilialdinið saxað smátt.

Olían hituð á pönnu og blaðlaukurinn steiktur við meðalhita í nokkrar mínútur.

Gúrkum, papriku og chili bætt á pönnuna, steikt áfram í nokkrar mínútur og hrært oft á meðan.

Ananasinn er svo settur á pönnuna ásamt safanum úr dósinni, ostrusósu, sojasósu og salthnetum, og látið malla þar til ananasinn er heitur í gegn.

Smakkað til og borið fram heitt, t.d. með hrísgrjónum eða núðlum.