Kjúklingur
Með paprikusalsa
Höfundur: Sigurveig Káradóttir
Innihaldslýsing:
- 4 kjúklingabringur, beinlausar og hamflettar
- 2 stk ferskt rósmarín, saxað
- Nýmalaður pipar
- Salt
- Ólífuolía
- 3 íslenskar paprikur, grænar, gular og rauðar
- 2 íslenskir tómatar, vel þroskaðir
- ½ lárpera, þroskuð
- Grænu blöðin af 2 – 3 vorlaukum
- Safi úr ½ sítrónu
- Safi úr 1 límónu
- Ferskur kóriander
Leiðbeiningar:
Kjúklingurinn kryddaður með rósmarín, pipar og salti og steiktur í dálítilli olíu á pönnu við meðalhita í um 8 mín. á hvorri hlið eða þar til hann er steiktur í gegn (gott að skera í eina bringuna til að athuga hvort hún er gegnsteikt).
Á meðan eru paprikurnar fræhreinsaðar og skornar í litla teninga.
Tómatar og lárperan skorin í teninga og vorlaukurinn sneiddur.
Öllu blandað saman í skál, kryddað með pipar, salti, og sítrónu og límónusafi kreistur yfir.
Söxuðum kóríander blandað saman við og látið standa smástund.
Dreift á diska eða fat og kjúklingabringunum raðað ofan á.
Salsan er líka góð með steiktu og grilluðu lamba- og nautakjöti, fiski o.fl.