Rófugratín
Með fennel og ólífum
Höfundur: Sigurveig Káradóttir

Innihaldslýsing:
6 hvítlauksgeirar heilir og í hýði
2 msk ólífuolía
1 krukka af tómatsósu
2 stk fennel skorið þversum í ½ cm þykkar sneiðar
2 stórar rófur skrældar, klofnar í tvennt og síðan í grófar sneiðar
Smá salt og grófur pipar ásamt 1 tsk timían og 1 tsk fennelfræ
½ krukka af steinlausum svörtum ólífum
Leiðbeiningar:
Smyrjið eldfast mót að innan með olíu, grænmetinu raðað í ásamt hvítlauksgeirunum, ólífuolíu dreift yfir ásamt tómatsósu, kryddum og ólífum.
Sett inn í heitan ofninn og bakað í 30-40 mínútur við 200°C.
Grænmetið á að vera lunga mjúkt og baðað í ólífuolíu og sósu.
Dásamlega gott með grænu salati, fiski og grillkjöti.