Ferskt rauðkálssalat

Með papriku og rauðlauk

Höfundur: SFG

Innihaldslýsing:
  • ½ meðalstórt rauðkál, mjög fínt skorið

  • ½ hvítkál, fínt skorið

  • 1 rauð paprika, í þunnum strimlum

  • ½ rauðlaukur, mjög fínt skorinn
  • 1 lítið epli, í þunnum sneiðum (valfrjálst en mjög gott)
  • fersk steinselja

Dressing
• 3 msk ólífuolía
• 1–2 msk sítrónusafi eða eplaedik
• 1 tsk hunang
• salt og nýmalaður pipar

 

Leiðbeiningar:

Skerið rauðkál og hvítkál í mjög fína strimla og setjið í stóra skál.

Bætið papriku, rauðlauk og epli saman við.

Hrærið saman ólífuolíu, sítrónusafa, hunangi, salti og pipar.

Hellið dressingunni yfir salatið og blandið vel.

Látið salatið standa í 10–15 mínútur áður en það er borið fram – þá mýkist kálið aðeins og bragðið verður betra.

Skreytið með ferskri steinselju.

Gott að bera fram með: Grilluðum kjúklingi eða fiski. Hamborgurum eða samlokum. Tacos eða pítum.