Rófu og eplasalat

Mango chutney

Höfundur: Nanna Rögnvaldardóttir

Innihaldslýsing:
  • 1 íslensk rófa, meðalstór
  • 1 rautt epli
  • 1 1/2 msk mangóchutney, eða eftir smekk
  • 2 tsk Dijon sinnep
  • 1 msk rauð- eða hvítvínsedik
  • 1 msk ólífuolía
  • Nýmalaður pipar
  • Salt
  • Dálítið af vætukarsa eða steinselju
Leiðbeiningar:

Rófan afhýdd

Eplið skorið í fjórðunga og kjarnhreinsað.

Bæði rófan og eplið rifið fremur gróft á rifjárni. Ef til er matvinnsluvél með rifjárnsskífu flýtir það óneitanlega fyrir.

Mangóchutney, sinnep, edik, olía, pipar og salt hrært saman í skál, hófu og eplum velt vel upp úr blöndunni, karsa eða steinselju hrært saman við.

Látið standa í kæli nokkra stund áður en það er borið fram.

Þetta salat er mjög gott með kjúklingi en hentar einnig með ýmsum heitum og köldum kjötréttum