Snakk paprikur

Jan
Feb
Mar
Apr
Maí
Jún
Júl
Ágú
Sep
Okt
Nóv
Des
Íslenska grænmetisdagatalið

Snakk paprikur eru smærri og sætari útgáfa af paprikum. Fullkomnar til að grípa með sér sem millimál, nýta í forréttinn eða sem bragðgóður aðalréttur. Hægt er að borða snakk paprikur beint úr glasinu og hentar vel sem nesti í skólann eða laugardagsnammi. Fylltar snakk paprikur eru góðar til að fylla með ostum og baka inni í ofni með örlitlu eldpiparkryddi ofan á.

Ræktun á snakk paprikum svipar mjög til ræktunar á stórum paprikum en meiri fjöldi aldina er á hverri plöntu og vega ekki nema um 30-35 gr. hver. Snakk paprikurnar koma í 4 litum, gulum, rauðum, appelsínugulum og grænum. Hver litur hefur sitt bragð, stærð og áferð. Öll fræin eru í toppi snakk paprikunnar, undir stilknum og því auðvelt að borða í kringum þau. Snakk paprikur eru alveg lausar við allt capsaicin sem eldpiprar innihalda og eru því ekki sterkar á bragðið.

 

Geymsla

Snakk paprikur geymast best við 7-10°C og má geyma í kæli líkt og eldpipra. Þannig geymast þær í allt að 5 vikur eða jafnvel lengur. Ef hitastigið er þó of lágt geta snakkpaprikurnar orðið fyrir kæliskemmdum og verða linar á þeim stöðum. Þær eru þó sætari ef þær hafa náð stofuhita áður en þær eru borðaðar. Líkt og með aðrar paprikur og eldpipra er hægt að frysta þær ef nota á til matreiðslu síðar. Best er að vera búin að skera snakkpaprikurnar niður í bita sem á að elda ef þær eru settar í frystinn.

Notkun

Nota má alla hluta aldinsins og fræin eru laus við allan hita, hægt að borða ferskar, nota í pastarétti eða sósur, þurrka fyrir krydd, súrsa, sulta eða baka. Gott er að fylla með ostum, bauna eða kjötfyllingu og setja inn í ofn í 10 mínútur við 180°C með blæstri eða 200°C undir yfirhita. Við bökun verða þær enn sætari.

 

Innihald í 100 gVatn 91 g
Næringargildi í 100 g
Orka138 kj
32 kcal
Fita0,2 g
Þar af mettuð0 g
Kolvetni5,4 g
Þar af sykurtegundir5,4 g
Trefjar2,3 g
Prótein1,2 g
Salt0, g
NV*
C vítamín200 mg250%
B6 vítamín0,45 mg32%
Kalíum290 mg15%

* Hlutfall af næringarviðmiðunargildum

Næringargildin hér að ofan eiga við rauðar paprikur. Örlítill munur er á milli lita en við völdum að gefa upp næringargildi vinsælasta litsins.Paprikan er einkar rík af B- og C-vítamíni, rauð aldin innihalda þrisvar sinnum meira C-vítamín heldur en appelsínur og græn aldin tvöfalt meira. Í þeim er einnig mikið af A- vítamíni, steinefnum og trefjum. Paprika er hitaeiningasnauð
Uppskriftavefur

Hollar uppskriftir

Í samvinnu við helstu kokka landsins koma reglulega nýjar og hollar uppskriftir á uppskriftarvef Íslenskt.is. Fylgstu með og komdu þér í form.
Uppskriftavefur