Oregano

Jan
Feb
Mar
Apr
Maí
Jún
Júl
Ágú
Sep
Okt
Nóv
Des
Íslenska grænmetisdagatalið

Oregano er notað í matargerð um allan heim, en þekktast er það þó í ítalskri og argentínskri matargerð. Bragðið er örlítið biturt með heitan undirtón af límónu, kamfóru, furu og mintu.

Oregano getur verið mjög mis bragðsterkt. Ólíkt mörgum öðrum kryddjurtum þolir oregano vel suðu og bragðið helst vel í réttinum.
Mjög gott á pizzuna, í sósur, salsa, pottrétti og bara eftir smekk hvers og eins.

 

Geymsla

Ártangaplöntur eru í pottum svo þær séu sem ferskastar þegar þú ferð með þær heim. Á meðan þær eru í pottinum fer best um þær við stofuhita. Ef þú klippir þær niður um leið og þú kemur heim geymast þær í kæli, en ekki basilikan, hún þolir aldrei undir 10°C þá verður hún fljótt svört og ljót.

Ártangakryddplöntur eru ungar og því geturðu nýtt alla plöntuna og þarft í fæstum tilvikum að taka stilkinn frá. Ef þú villt lengja líftíma plöntunnar í pottinum þá er nauðsynlegt að umpotta í stærri pott og gefa henni næringu og mikið ljós til að viðhalda bragðgæðum.

Ef svo óheppilega vill til að plantan þín þornar, ekki henda henni. Klipptu hana af rótinni og leggðu á pappír og þurrkaðu hana vel. Hún  er bara orðin að þurrkaðri kryddjurt og bragðið er það sama. Sagt er að maður geti aldrei notað of mikið af kryddjurtum, bara of lítið. Ef þú setur smá er það bara liturinn sem breytist ekki bragðið.

Hvaða hluta er hægt að  borða?

Borða má alla hluta.
En ef hún er í potti þá ráðleggjum við ekki að borða ræturnar 😉

 

 

Uppskriftavefur

Hollar uppskriftir

Í samvinnu við helstu kokka landsins koma reglulega nýjar og hollar uppskriftir á uppskriftarvef Íslenskt.is. Fylgstu með og komdu þér í form.
Uppskriftavefur