Jarðarber
Jarðaberjaplönturnar eru jurtkenndar fjölærar plöntur. Plöntunum er fjölgað með græðlingum og þær oftast ræktaðar í eitt ár áður en þær fara að gefa ber. Blómgreinar eru lagðar á strengi svo þær brotni ekki af plöntunni, berin geta verið mörg og þung á hverri blómgrein.
Notaðar eru býflugur til að frjóvga blómin og ýmis nytjadýr til að halda niðri meindýrum.
Berin eru brotin af greinunum. Fræin liggja í ysta lagi bersins. Berin eru tínd daglega á uppskerutíma. Berjatínsla byrjar í maí, tínt er fram í september og jafnvel fram í október.
Geymsla
Jarðarber geymast í 5 – 7 daga. Kjörhiti er 4 – 8°C.
Berin geymast vel í frysti.
Notkun
Jarðarber eru góð fersk í salatið, með kökunni, ísnum og rjómanum og ekki síst í bústið ýmist fersk eða frosin. Eða bara ein og sér. Svo má ekki gleyma að jarðarber eru afargóð í sultu.
Best er að borða þau ekki beint úr kæli, þau eru bragðsterkari ef þau eru ekki of köld.
Má frysta jarðarber?
Hvaða hluta er hægt að borða?
Alla hluta 😉
Innihald í 100 g | Vatn 92 g |
---|
Næringargildi í 100 g | |
---|---|
Orka | 30 kj |
0,6 kcal | |
Fita | 0,6 g |
Þar af mettuð | 0,6 g |
Kolvetni | 4,8 g |
Þar af sykurtegundir | 4,5 g |
Trefjar | 1,6 g |
Prótein | 0,6 g |
Salt | 0,0 g |
NV* | ||
---|---|---|
C vítamín | 68 mg | 85% |
Fólínsýra | 117 mg | 59% |
Kalk | 20 mg | 25% |
* Hlutfall af næringarviðmiðunargildum