Heiðmerkursalat

Heiðmerkursalat er mjög bragðgott blaðsalat (Batavia) af tegundinni Afficion. Salatið er ræktað í rennum og fær rennandi næringarlausn og vaxtarlýsingu. Það er mjög fljótvaxið, tekur aðeins um 6 vikur frá sáningu að uppskeru, í 16 – 18 °c ræktunarhita í mold.
Kjörhitastig eftir uppskeru salatsins er 2 – 4 °c og gott er að geyma það upprétt í ísskáp, halda moldinni rakri og klippa af plöntunni það magn sem þarf hverju sinni. Með þessu móti á salatið að endast mun lengur en ella.
Geymsla
Heiðmerkursalatið geymist mjög vel, að minnsta kosti 15 daga í kæli.
Notkun
Heiðmerkursalatið hentar sem meðlæti með nánast öllum mat. Mjög gott er að bæta öðru grænmeti eða ávöxtum saman við og búa þannig til gómsæta máltíð. Einnig hentar það mjög vel í alla grænmetisþeytinga.



Innihald í 100 g | Vatn 94 g |
---|
Næringargildi í 100 g | |
---|---|
Orka | 90 kj |
21 kcal | |
Fita | 0,4 g |
Þar af mettuð | 0,1 g |
Kolvetni | 2,1 g |
Þar af sykurtegundir | 2,1 g |
Trefjar | 2,2 g |
Prótein | 1,3 g |
Salt | 0,02 g |
NV* | ||
---|---|---|
Kalíum | 406 mg | 20% |
* Hlutfall af næringarviðmiðunargildum