Stökkt kálsalat

Með rauðkáli og fræum

Höfundur: SFG

Innihaldslýsing:
  • 2 bollar rauðkál, fínt skorið

  • 2 bollar kínakál eða hvítkál, fínt skorið

  • 2 meðalstórar gulrætur, rifnar eða skornar í þunna strimla

  • 3 msk furuhnetur ( má líka rista þær)
  • 2 msk sólblómafræ eða graskerfræ
  • 1 msk sesamfræ
  • fersk steinselja

Dressing
• 3 msk ólífuolía
• 1–2 msk sítrónusafi eða eplaedik
• 1 tsk hunang
• salt og nýmalaður pipar

 

Leiðbeiningar:

Setjið rauðkál, kínakál og gulrætur í stóra skál.

Blandið vel saman svo litirnir dreifist fallega.

Stráið fræjum og furuhnetum yfir.

Hrærið saman ólífuolíu, sítrónusafa, hunangi og sinnepi í litla skál.

Hellið dressingunni yfir salatið og blandið varlega

Toppið með ferskri steinselju áður en borið er fram.