Rófu franskar
Í Airfryer eða ofni – Bara gott!
Höfundur: SFG

Innihaldslýsing:
2 – 3 rófur
Ólífuolía
Rósmarín
- 2-4 hvítlauksgeirar – má sleppa en gerir gott bragð 😉
- Pipar
- Salt
Leiðbeiningar:
Skerið rófur niður í strimla.
Dreifið rófunum jafnt yfir ofnplötuna eða setjið í Airfryer hólfið.
Hellið olífuolíu jafn yfir.
Stráið þurrkuðu rósmarín yfir.
Kryddið með salt og pipar.
Einnig má líka saxa niður ferskan hvítlauk og blanda saman við. Valkvætt.
Blandið öllu vel saman svo olían og kryddið fái jafna áferð.
Bakið í airfryer eða ofni við 200°c í ca. 15 – 20 mín eða þar til rófurnar eru orðnar fallega ristaðar og stökkar.
Gott er að taka airfryer skúffuna út einu sinni til tvisar og hrista upp í rófunum til að jafna áferð. Sama á við um ef þær eru bakaðar í ofni.



