Heimalöguð tómatsósa
Góð með öllu
Höfundur: Hrefna Sætran
Innihaldslýsing:
- 10 stk tómatar
- 2 stk laukur
- 1 msk sinnep
- 1 msk Worchesershire sósa
- 150 ml hrísgrjónaedik
- 100 ml vatn
- 30 ml sojasósa
- 100 ml hunang
- 50 ml hrásykur
- Salt og pipar
Leiðbeiningar:
Skerið tómatana og laukinn gróft.
Setjið í pott ásamt öllu hinu hráefninu.
Sjóðið við vægan hita þar til allt hefur náð að blandast vel saman og er orðið hæfilega þykkt.
Maukið í matvinnsluvél og kryddið með salti og pipar.
Einnig er hægt að hafa sósuna grófari og þá er bara að sleppa því að mauka hana eða mauka minna.