Grænmeti í wok
Alltaf gaman að elda
Höfundur: Nanna Rögnvaldardóttir
Innihaldslýsing:
- 2 msk olía
- 2 hvítlauksgeirar, saxaðir smátt
- 2-3 cm bútur af engifer, saxaður smátt
- 2-3 vorlaukar, saxaðir smátt
- 250 g hvítkál, skorið í mjóar ræmur
- 2 paprikur, fræhreinsaðar og skornar í litla bita
- 350 g sveppir, skornir í sneiðar
- ½ gúrka, skorin í litla stauta eða bita
- 3 msk ostrusósa
- 3 msk sojasósa
- 2 tsk sykur
- Svolítið vatn
- Saxaður kóríander eða steinselja
Leiðbeiningar:
Olían hituð vel í wok eða á stórri pönnu og hvítlaukur, engifer og vorlaukur snöggsteiktur við háan hita.
Hinu grænmetinu bætt á pönnuna smátt og smátt, steikt við góðan hita og hrært stöðugt í á meðan.
Þegar grænmetið er farið að mýkjast ögn er ostrusósu og sojasósu bætt á pönnuna og síðan sykri og svolitlu vatni.
Látið sjóða áfram þar til grænmetið er rétt meyrt.
Smakkað og bragðbætt eftir smekk.
Kóríander eða steinselju stráð yfir og borið fram.