Fylltir smátómatar
Með mozzarella
Höfundur: Hrefna Sætran

Innihaldslýsing:
- 1 askja smátómatar
- 1 poki litlar mozzarellakúlur
- Gróft sjávarsalt og svartur pipa (ef þið ætlið að steikja tómatana)
- 2 greinar rósmarín
- Ólífuolía
Leiðbeiningar:
Skerið tómatana í tvennt og kjarnhreinsið þá.
Setjið mozzarellaostinn inn í miðjuna og stingið tannstöngli í gegnum tómatinn.
Kryddið með salti og pipar.
Einnig er hægt að léttsteikja tómatana á pönnu upp úr olíu með smá rósmarin á. Þá bráðnar osturinn smá og það kemur skemmtilegt bragð að rósmaríninu.