Fiskur með sellerí salsa
Paprika og vorlaukur
Höfundur: Nanna Rögnvaldardóttir
Innihaldslýsing:
- 6-800 g fiskflök, steinbítur, þorskur eða ýsa
- 2 msk olía
- pipar
- salt
- 2 tómatar
- 1 paprika, gul eða appelsínugul
- 2-3 vorlaukar (eða smábiti af blaðlauk)
- lófafylli af söxuðu laufselleríi
- safi úr ½ sítrónu
- chili-pipar á hnífsoddi
Leiðbeiningar:
Hitaðu ofninn í 200°C.
Skerðu fiskinn í stykki og penslaðu þau með ögn af olíunni og kryddaðu þau með pipar og salti. Raðaðu þeim á plötu eða í eldfast mót.
Saxaðu tómata, papriku, vorlauk og sellerí smátt og blandaðu saman í skál.
Blandaðu sítrónusafa, afganginum af olíunni, chili-pipar, pipar og salti saman við og hrúgaðu blöndunni ofan á fiskstykkin.
Breiddu álpappír lauslega yfir og bakaðu í miðjum ofni í 8-13 mínútur (eftir þykkt stykkjanna), þar til fiskurinn er rétt steiktur í gegn.