Tómata marmelaði
Gott á brauðið
Höfundur: Hrefna Sætran

Innihaldslýsing:
10 stk tómatar
2 stk appelsínur
2 stk sítrónur
200 g sykur
4 stk negulnaglar
1 kanilstöng
Leiðbeiningar:
Takið hýðið utan af tómötunum.
Best er að skera í tómatana, dýfa í sjóðandi saltvatn í 5 sekúndur og setja þá svo í kalt vatn. Þá er hýðið laust á þeim.
Skerið tómatana í bita.
Skrælið appelsínurnar og sítrónurnar og skerið einnig í bita.
Setjið allt hráefnið í pott og sjóðið í ca. 1 klst eða þar til þykkt. Hrærið vel í á meðan.
Fjarlægið negulnaglana og kanilstöngina.