Gljáðar gulrætur

Nýtt og spennandi

Höfundur: Nanna Rögnvaldardóttir

Innihaldslýsing:
  • 500 g gulrætur
  • 1-2 rauðlaukar
  • 2 msk olía
  • 2 tsk hlynsíróp eða sykur
  • 1 tsk engifer, fínsaxað eða rifið
  • Nýmalaður pipar
  • Salt
  • 200 ml appelsínulímonaði
  • Nokkrar greinar af fersku timían
Leiðbeiningar:

Ofninn hitaður í 200°C.

Gulræturnar skafnar eða flysjaðar og toppurinn skorinn af. Rauðlaukurinn flysjaður og skorinn í geira.

Olíu, sírópi, engifer, pipar og salti blandað saman í eldföstu móti og gulrótunum og lauknum velt upp úr leginum.

Sett í ofninn, appelsíninu hellt í mótið og bakað í 50-60 mínútur eða þar til gulræturnar eru meyrar (best að stinga í þær með hnífsoddi).

Bætið við meira appelsíni eða vatni eftir þörfum, svo að gulræturnar brenni ekki.

Gulræturnar eru mjög góðar með alls konar steiktu og grilluðu kjöti.

Skreytt með nokkrum timían greinum.