Frönsk antipasti

Salatdiskur

Höfundur: Nanna Rögnvaldardóttir

Innihaldslýsing:
  • Grand eða Heiðmerkursalat
  • 3-4 íslenskir tómatar, vel þroskaðir
  • 1-2 íslenskar paprikur, ferskar eða grillaðar
  • 2 – 3 harðsoðin egg
  • ½ Höfðingi, Dala-brie eða annar ostur
  • Hráskinka eða annað kjötálegg í sneiðum
  • Grænar eða svartar ólífur
  • ½ knippi fersk basilika
  • Nýmalaður pipar
  • Sjávarsalt
Leiðbeiningar:

Salatið rifið sundur í blöð, þvegið og þerrað og síðan er blöðunum raðað á stóran, kringlóttan disk eða fat.

Tómatarnir skornir í báta, paprikurnar í ræmur og eggin í báta og osturinn í bita.

Öllu raðað ofan á salatblöðin og basilikuknippi sett í miðjuna.

Kryddað með pipar og sjávarsalti og berið fram með nógu af góðu brauði, annað hvort sem forréttur eða léttur aðalréttur.