Kjúklingasúpa

Með papriku og káli

Höfundur: Nanna Rögnvaldardóttir

Innihaldslýsing:
  • 2 kjúklingabringur
  • 1 ½ msk olía
  • 1 laukur, saxaður
  • 1 hvítlauksgeiri, saxaður smátt
  • 2-3 paprikur, gjarna mismunandi litar, fræhreinsaðar og skornar í bita
  • 1 ltr vatn
  • 1 msk grænmetis- eða kjúklingakraftur
  • 2-3 cm bútur af engifer, smátt saxaður
  • Nýmalaður pipar
  • Salt
  • 150 g spergilkál, skipt í kvisti
  • 150 g blómkál, skipt í kvisti
  • 150 g hvítkál, skorið í mjóar, stuttar ræmur
  • Sítrónu- eða límónusafi
  • Söxuð steinselja (má sleppa)
Leiðbeiningar:

Kjúklingabringurnar skornar í þunnar sneiðar þvert yfir. Olían hituð í potti og laukur og hvítlaukur látinn krauma í nokkrar mínútur án þess að brúnast.

Paprikurnar settar út í og látnar krauma í nokkrar mínútur í viðbót.

Vatninu hellt yfir og hitað að suðu.

Grænmetis- eða kjúklingakrafti og engifer hrært saman við og kryddað með pipar og salti. Látið malla í 6-8 mínútur.

Þá eru kjúklingasneiðarnar settar út í og síðan spergilkál, blómkál og hvítkál. Hitað að suðu og látið malla í 5-6 mínútur, eða þar til kálið er meyrt og kjúklingurinn soðinn í gegn.

Súpan bragðbætt með sítrónu- eða límónusafa, pipar og salti eftir smekk og dálítilli steinselju e.t.v. hrært saman við.