Ofnbökuð blómkálssúpa
Ljúffeng og góð
        Höfundur: Sigurveig Káradóttir
            
            Innihaldslýsing:
            
        
        - 6 – 7 msk ólífuolía
 - 1 kg blómkál
 - 300 g laukur
 - 100 g sellerí
 - 4-5 hvítlauksrif
 - 1 ltr grænmetissoð
 - 2-3 tsk túrmerik
 - 1/2 tsk cayennepipar
 - 3-4 lárviðarlauf
 
            Leiðbeiningar:
            
        
    Blómkálið skorið í bita og velt úr 5-6 msk af ólífuolíu, 1-2 tsk. af sjávarsalti, 1 tsk af hvítum pipar, og 2 tsk af túrmerik.
Sett í fat og ofnbakað við 200°C í 20-30 mínútur eða þar til blómkálið er mjúkt og farið að taka lit.
Laukur og sellerí saxað smátt, sett í pott ásamt 1-2 msk af ólífuolíu, lárviðarlaufum og ögn af sjávarsalti og látið malla á vægum hita í 5-6 mínútur eða þar til það hefur linast ögn.
Því næst fer smátt saxaður hvítlaukur í pottinn, næst soðið og loks ofnbakaða blómkálið.
Látið sjóða í 10 mínútur eða þar til allt er orðið lint og vel soðið.
Þá eru lárviðarlaufin veidd úr, súpan maukuð og krydduð til ef þarf.