Sveppasalat
Í kryddjurtamareningu
Höfundur: Nanna Rögnvaldardóttir
Innihaldslýsing:
-
8-10 íslenskir tómatar
-
1 tsk kummin (cumin)
-
1 tsk sykur
-
Nýmalaður pipar
-
Salt
-
6 msk ólífuolía
-
1 poki salatblanda, t.d. íslenskt klettasalat
-
Parmesanostur (biti)
Leiðbeiningar:
Ofninn hitaður í 220°C.
Tómatarnir skornir í helminga og raðað í eldfast fat með skurðflötinn upp.
Kryddaðir með kummin, sykri, pipar og salt.
Settir í ofninn og bakaðir í um 45 mínútur.
Þá er olíunni dreypt jafnt yfir þá og þeir bakaðir í 10-15 mínútur í viðbót.
Látnir kólna þar til þeir eru volgir.
Salatblandan sett í skál eða á fat, tómötunum blandað saman við og olíunni úr mótinu hellt yfir.
Nokkrar flögur skornar af parmesanosti og dreift yfir.