Spergilkálspasta
Með reyktum laxi
        Höfundur: Nanna Rögnvaldardóttir
 
            
            Innihaldslýsing:
            
        
        - 
400 g íslenskt spergilkál 
- 
Salt 
- 
350 g pasta, t.d. skeljar 
- 
75-100 g reyktur lax 
- 
2 egg 
- 
3 msk rjómi, matreiðslurjómi eða mjólk 
- 
Nýmalaður pipar 
            Leiðbeiningar:
            
        
    Spergilkálið snyrt, skipt í kvisti og soðið í saltvatni í 3-4 mínútur.
Pastað soðið í saltvatni þar til það er rétt tæplega meyrt, eða samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum.
Laxinn skorinn í þunnar sneiðar og þær síðan í bita.
Egg, rjómi, pipar og salt þeytt saman í stórri skál.
Þegar pastað er soðið er látið renna af því í sigti og síðan er sjóðheitu pastanu hvolft beint í skálina, heitu spergilkáli bætt við og blandað vel.
Að lokum er laxinum blandað saman við.