Rófu og eplasalat
Mango chutney
Höfundur: Nanna Rögnvaldardóttir
Innihaldslýsing:
- 1 íslensk rófa, meðalstór
- 1 rautt epli
- 1 1/2 msk mangóchutney, eða eftir smekk
- 2 tsk Dijon sinnep
- 1 msk rauð- eða hvítvínsedik
- 1 msk ólífuolía
- Nýmalaður pipar
- Salt
- Dálítið af vætukarsa eða steinselju
Leiðbeiningar:
Rófan afhýdd
Eplið skorið í fjórðunga og kjarnhreinsað.
Bæði rófan og eplið rifið fremur gróft á rifjárni. Ef til er matvinnsluvél með rifjárnsskífu flýtir það óneitanlega fyrir.
Mangóchutney, sinnep, edik, olía, pipar og salt hrært saman í skál, hófu og eplum velt vel upp úr blöndunni, karsa eða steinselju hrært saman við.
Látið standa í kæli nokkra stund áður en það er borið fram.
Þetta salat er mjög gott með kjúklingi en hentar einnig með ýmsum heitum og köldum kjötréttum