Lambakebab
Höfundur: Nanna Rögnvaldardóttir
- 700 g lamba- eða kindafillet
- 2 msk pestósósa, græn eða rauð
- 2-3 hvítlauksgeirar, pressaðir
- 5 msk ólífuolía
- Safi úr 1 sítrónu
- Nýmalaður pipar
- Salt
- 500 g konfekttómatar
- 300 g sveppir
- 6 pítubrauð
- Kínakál eða salatblöð
- 3-4 tómatar, saxaðir
- ½ gúrka, skorin í teninga
- Nokkur basilikublöð, söxuð smátt
- 2 tsk rautt pestó
Kjötið skorið í þunnar sneiðar.
Pestósósu, hvítlauk, 2 msk af olíu, sítrónusafa og pipar blandað saman í skál, kjötinu velt upp úr blöndunni og það látið standa í kæli í 1-2 klst.
Þá eru sneiðarnar saltaðar og síðan þræddar upp á teina til skiptis við konfekttómata og sveppi.
Penslað með kryddlegi og látið bíða á meðan grillið er hitað vel (einnig má nota grillpönnu).
Kebab-pinnarnir grillaðir í um 3 mínútur á hvorri hlið, eða eftir smekk.
Pítubrauðin pensluð með olíu (eða afganginum af kryddleginum) og grilluð á báðum hliðum þar til þau fara að taka lit.
Pítubrauðin skorin í geira.
Kínakáls- eða salatblöðum dreift á fat.
Tómat- og gúrkubitum blandað saman við afganginn af olíunni (3 msk), basiliku og pestó hellt yfir salatblöðin.
Kebab-pinnunum raðað ofan á.