Gúrku spagettini
Með kasjúsósu
Höfundur: Ylfa Helgadóttir
Innihaldslýsing:
- 1 gúrka skorin í spagettivél
- 2 dl kasjú hnetur
- 1 búnt rauð vínber
- 5 sólþurrkaðir tómatar
- Salt og pipar
- 2 msk ólífuolía
- Basil ef vill
Leiðbeiningar:
5 dl af kasjú hnetum eru lagðar í bleyti í 2klst
Eftir tvo tíma eru hneturnar settar í blandara með smá af vatninu sem þær lágu í og ólífuolíunni og ca ¼ tsk salt. Maukað þar til silkimjúkt.
Vínber skorin í helming og restin af kasjúhnetum saxaðar gróflega
Gúrkuspagettíinu er velt uppúr kasjú mauki og lagt á disk, þurrkuðu tómatarnir lagðir ofan á ásamt vínberjum og söxuðum kasjú.
Skreytt með basil laufum.