Frönsk antipasti

Með Rósasalati

Höfundur: Nanna Rögnvaldardóttir

Innihaldslýsing:
  • Rósasalat
  • 3-4 íslenskir tómatar, vel þroskaðir
  • 1-2 íslenskar paprikur, ferskar eða grillaðar
  • 2 – 3 harðsoðin egg
  • ½ Höfðingi, Dala-brie eða annar ostur
  • Hráskinka eða annað kjötálegg í sneiðum
  • Grænar eða svartar ólífur
  • ½ knippi fersk basilika
  • Nýmalaður pipar
  • Sjávarsalt
Leiðbeiningar:

Rósasalatið rifið sundur, þvegið og þerrað og síðan er blöðunum raðað á stóran, kringlóttan disk eða fat.

Tómatarnir skornir í báta, paprikurnar í ræmur, eggin í báta og osturinn í bita. Hráskinkan eða kjötáleggið í sneiðum eða rifið niður í ræmur.

Öllu raðað ofan á salatblöðin og basilikuknippi sett í miðjuna.

Kryddað með pipar og sjávarsalti og berið fram með nógu af góðu brauði, annað hvort sem forréttur eða léttur aðalréttur.