Bakaðar kartöflur
Með timían og sesamfræjum
        Höfundur: Kristján Þór
 
            
            Innihaldslýsing:
            
        
        - 500 g bökunarkartöflur, ca. 5 stk
- Ögn af ólífuolíu
- Salt
- Pipar
- Timían
- Sesamfræ
            Leiðbeiningar:
            
        
    Bökunarkartöflur eru skrældar.
Skerið lítillega af einni hliðinni svo kartaflan rúlli ekki út um allt.
Skerið niður í hálfa kartöflu með 2 mm millibili.
Sett á bökunarplötu og penslað með olíu.
Kryddið með salti, pipar og t.d. sesamfræjum, timían eða öðrum góðum kryddum.
Reynið að fletta rifunum aðeins opnum svo kryddið fari á milli laga í kartöflunni.
Bakið við 170°C í 25 – 30 mín.
Þetta er smart meðlæti með öllum mat.
Ef vill má skræla kartöflurnar aðeins þykkar og steikja hýðið sem nasl.
 
             
             
            