Bættar matarvenjur
Stórt skref í átt að því að bæta matarvenjur þínar er að læra að þekkja innihaldslýsingar á matvörum og vita þá hvað þú ert í raun að borða.
Skoðaðu innihaldslýsingu á þeirri matvöru sem þú kaupir og þá sérstaklega með tilliti til sykur-, fitu- og saltinnihalds vörunnar
Þegar maður byrjar að skoða innihaldslýsingarnar þá kemur það oft á óvart hvað varan inniheldur. Kexið sem þú hélst að væri sykurlaust er pakkað af sykri, þrátt fyrir að það sé ekkert súkkulaðikrem á því!
Að skoða innihaldslýsingu tekur stutta stund og er það stórt skref í átt að betri matarvenjum. Hér er listi sem gott er að styðjast við varðandi innihald vörunnar.
Hvað er lítið og hvað er mikið.
Í 100 grömmum af fæðutegund:
Mikið er þetta magn eða meira
10g af sykri
20g af fitu
5g af mettaðri fitu
3g af trefjum
0.5g af natríum (salti)
Lítið er þetta magn eða minna
2g af sykri
3g af fitu
1g af mettaðri fitu
0.5g af trefjum
0.1g af natríum (salti)