Smjörsteikt hvítkál

Með lauk og timían

Höfundur: Nanna Rögnvaldardóttir

Innihaldslýsing:
  • 1 íslenskur hvítkálshaus, meðalstór

  • 1 laukur

  • 50 g smjör

  • 100 ml eplasafi (einnig má nota appelsínusafa)

  • 2 msk eplaedik (cider vinegar)

  • 1/2 tsk timían, 

  • Nýmalaður pipar

  • Salt

Leiðbeiningar:

Hvítkálið skorið í fjórðunga, stilkurinn fjarlægður og kálið síðan skorið í þunnar ræmur.

Laukurinn saxaður smátt.

Smjörið brætt á stórri pönnu og laukurinn látinn krauma í því við fremur vægan hita þar til hann er meyr.

Þá er kálinu bætt á pönnuna og það látið krauma í um 5 mínútur. Hrært oft á meðan.

Eplasafa og edik hellt á pönnuna, kryddað með timían, pipar og salt, lok lagt yfir og látið malla við vægan hita í um 5 mínútur.

Síðan er lokið fjarlægt og kálið látið sjóða áfram í 2-3 mínútur, eða þar til nær allur vökvi er gufaður upp.

Þessi kálréttur er sérlega góður með reyktu svínakjöti, hentar einnig með fuglakjöti og lambasteik.