Grísk tzatsiki ídýfa

Gott á brauðið

Höfundur: Nanna Rögnvaldardóttir

Innihaldslýsing:
  • 1 íslensk gúrka
  • Salt
  • 100 g hreint skyr, hrært
  • 1/2 dós hrein jógúrt
  • 2-4 hvítlauksgeirar, eftir smekk
  • 2 msk ólífuolía
  • Nýmalaður pipar
  • E.t.v. nokkrar ólífur til skreytingar
Leiðbeiningar:

Gúrkan rifin gróft á rifjárni og síðan sett í sigti, svolitlu salti stráð yfir og farg lagt ofan á (t.d. diskur sem passar í sigtið og síðan niðursuðudós eða eitthvað annað þar ofan á).

Sett yfir skál og látið standa í a.m.k. hálftíma. Gott er að þrýsta farginu niður öðru hverju til að pressa sem allra mest af safanum úr.

Skyr og jógúrt hrært saman í skál, hvítlaukurinn pressaður yfir og síðan er ólífuolíu, pipar og rifnu gúrkunni hrært saman við.

Smakkað og e.t.v. bragðbætt með meiri pipar og salti.

Kælt dálitla stund og síðan borið fram í skál, e.t.v. skreytt með ólífum.

Tzatziki má hafa sem ídýfu með góðu brauði eða sem sósu með ýmsum grilluðum mat, t.d. grilluðum fiski eða lambakjöti.