Sælkerasamlokur
Höfundur: Nanna Rögnvaldardóttir
-
8 sneiðar af góðu, grófu brauði
-
Ólífuolía eftir þörfum
-
Mauk úr sólþurrkuðum tómötum (eða rautt pestó)
-
Klettasalat
-
3 tómatar, vel þroskaðir
-
2 kjúklingabringur, steiktar
-
1 ostarúlla með blönduðum pipar frá Ostahúsinu
Þykkbotna panna hituð, svolítil ólífuolía sett á hana og brauðsneiðarnar steiktar við góðan hita þar til þær hafa tekið dálítinn lit á báðum hliðum.
Meiri olíu bætt við eftir þörfum en brauðið á ekki að vera löðrandi í olíu (einnig má rista brauðið í brauðrist).
Sneiðarnar eru svo smurðar með svolitlu tómatmauki eða pestói.
4 sneiðar settar á diska, klettasalati dreift á þær, tómatarnir skornir í þykkar sneiðar og raðað ofan á og síðan eru kjúklingabringurnar skornar í sneiðar þvert yfir og raðað ofan á tómatana.
Ostarúllan skorin í sneiðar og raðað þar ofan á og brauðsneiðarnar sem eftir eru lagðar yfir allt saman.