Ofnbakaðar rófur
Með eplum
Höfundur: Helga Mogensen

Innihaldslýsing:
- 3 stórar rófur, skrældar, skornar þversum og síðan í ½ cm þykkar sneiðar
- 3 græn epli sama aðferð og með rófurnar
- 2 laukar sama aðferð
- Smá olía ásamt sítrónusafa, eplasafa og rifnum engifer
- ½ tsk kanill,
- Gróft salt
- ½ msk tamari sósa (soyasósa)
Leiðbeiningar:
Þegar búið er að skera grænmetið og eplin er því raðað í eldfast mót og smá olíu og salt stráð yfir.
Bakað í ofni við 200°C í 30-40 mín.
Blanda saman olíu, eplasafa, tamarisósu, kanil og salt og strá yfir þegar rétturinn er tilbúinn til að bera hann fram og skreyta með söxuðum kóríander.