Ofnbakaðar kartöflur
Með grænmeti
Höfundur: Nanna Rögnvaldardóttir
Innihaldslýsing:
- 250 g kartöflur skornar í báta
- 250 g gulrætur skorið í 1,5 cm sneiðar
- 250 g steinseljurót skorin í 1,5 cm kubba
- 250 g sellerírót, skorin í kubba
- 200 g ólífur
- 250 g laukur, skorinn í báta
- 5 stk hvítlauksrif, söxuð
- 60 ml ólífuolía
- Íslensk steinselja, söxuð
- Salt og pipar
Leiðbeiningar:
Ofninn er hitaður í 200°C .
Kartöflur, gulrætur, steinseljurót, sellerírót, laukur og hvítlaukur er sett í eldfast mót og ólífuolían sett yfir.
Kryddað með salt og pipar.
Bakað í um það bil 25 mín.