Ofnbakaðar gulrætur

Með kartöflum og hlynsíróp

Höfundur: Nanna Rögnvaldardóttir

Innihaldslýsing:
  • 500 g gulrætur
  • Salt
  • 500 g parísarkartöflur
  • 75 g smjör
  • 4 msk hlynsíróp
  • 1-2 tsk sætt sinnep
Leiðbeiningar:

Gulræturnar flysjaðar eða skafnar, skornar í 1 cm þykkar sneiðar og soðnar í saltvatni þar til þær eru rétt meyrar.

Þá er látið renna af þeim í sigti og þeim blandað saman við kartöflurnar.

Smjörið brætt á pönnu og kartöflur og gulrætur látnar krauma í því í 2-3 mínútur.

Hlynsírópi og sinnepi blandað saman, hellt jafnt yfir, hrært vel og látið krauma í nokkrar mínútur í viðbót.

Hrært oft á meðan.