Minestrone súpa
Blandað grænmeti
Höfundur: Nanna Rögnvaldardóttir
Innihaldslýsing:
- 2 msk olía
- 1 laukur, saxaður
- 1-2 hvítlauksgeirar, saxaðir smátt
- 2-3 gulrætur, þunnt sneiddar
- 2-3 sellerístönglar, þunnt sneiddir
- 2 paprikur, skornar í bita
- 500 g tómatar, saxaðir
- 1 msk ferskt timían, saxað, eða 1 tsk þurrkað
- Nýmalaður pipar
- Salt
- 1 ltr vatn
- 1 msk grænmetiskraftur
- 250 g blómkál, saxað
- 250 g spergilkál, saxað
- 100 g pastaslaufur
Leiðbeiningar:
Olían hituð í potti og laukur og hvítlaukur látinn krauma við meðalhita í smástund án þess að brúnast.
Þá er gulrótum, sellerí, paprikum, tómötum, timían, pipar og salt bætt út í og látið krauma í nokkrar mínútur.
Vatni og grænmetiskrafti bætt í pottinn, hitað að suðu og látið malla í 15-20 mínútur undir loki.
Blómkáli, spergilkáli og pasta bætt út í og látið malla í 8-10 mínútur í viðbót, eða þar til grænmetið og pastað er meyrt.
Smakkað og bragðbætt með pipar og salti eftir smekk.