Hátíðar rauðkál
Ómissandi á jólunum
Höfundur: Nanna Rögnvaldardóttir

Innihaldslýsing:
350g rauðkál
300ml Ribena sólberjasaft
200ml edik ( epla eð rauðvíns)
50ml vatn
Leiðbeiningar:
Skerið niður rauðkálið gróft eða smátt eftir smekk.
Setjið 50ml af vatni í pott ásamt rauðkálinu og saftinu.
Látið suðuna koma upp og sjóðið við vægan hita í 30 mínutur.
Bætið edikinu við og sjóðið áfram í 15 mínútur eða þar til rauðkálið er orðið hæfilega mjúkt.



