Blómkálsgratín
Með gráðostasósu
        Höfundur: Nanna Rögnvaldardóttir
            
            Innihaldslýsing:
            
        
        - 800 g blómkál
 - Salt
 - 250 ml matreiðslurjómi eða rjómi
 - 100 g gráðaostur
 - 75 g rjómaostur
 - 1/4 tsk timian,
 - Nýmalaður pipar
 - 2 egg
 - Nokkrir valhnetukjarnar
 - Smjör til að smyrja formið
 
            Leiðbeiningar:
            
        
    Ofninn hitaður í 200°C.
Blómkálið snyrt, skipt í kvisti og soðið í saltvatni í 3-4 mínútur.
Hellt í sigti og látið renna vel af því.
Rjóminn hitaður í potti, muldum gráðaosti og rjómaosti hrært saman við og hrært þar til osturinn er bráðinn.
Kryddað með timían, pipar og salt.
Eggin þeytt létt í skál, heitri gráðaostssósunni hrært saman við í mjórri bunu og hrært rösklega á meðan.
Blómkálinu dreift í vel smurt form, valhneturnar muldar yfir og síðan er sósunni hellt jafnt yfir allt saman.
Sett í ofninn og bakað í 15-20 mínútur, eða þar til fyllingin hefur stífnað og tekið góðan lit.